Kvennanefnd

Í stjórn kvennanefndar Keilis 2024 voru Rósa Lyng Svavarsdóttir formaður, Kristín Geirsdóttir, Nína Edvardsdóttir, Rut Sigurvinsdóttir, Sigrún Einarsdóttir og Sigurlaug Jóhannsdóttir.

Árið hófst með púttmótaröðinni og lokahófi hennar en yfir 60 konur tóku þátt í púttinu.

Miðvikudagsmótaröðin var á sínum stað hjá Keiliskonum í sumar og tóku yfir 140 konur þátt í mótaröðinni í fjórum forgjafarflokkum, þremur á Hvaleyrarvelli og einn á Sveinskotsvelli. Uppskeruhóf mótaraðarinnar var svo í lok september.

Í júní var í fyrsta sinn haldið vinkonumót Keiliskvenna með konum úr Golfklúbbi Reykjavíkur þar sem spilaður var einn dagur á hvorum velli. Að loknum seinni deginum var kvöldmatur og verðlaunaafhending. Alls tóku tæplega 120 konur þátt í mótinu.

Í ágúst var svo Opna kvennamót Keilis með um 160 þátttakendum en þetta er með flottustu kvennamótum á landinu með mjög veglegum vinningum. Meirihluti kvennanna mætti síðan á verðlaunaafhendingu og kvöldverð um kvöldið.

Í september var síðan haustferð Keiliskvenna. Tæplega 100 konur fóru og spiluðu Hamarsvöll í Borgarfirði. Lokahóf var haldið um kvöldið á Hótel Hamar. Golfmót haustferðarinnar er þannig að öllum konunum er skipt í tvö lið, bláa/bleika og svarta/appelsínugula, sem keppa um sigur og í þetta sinn var það appelsínugula og svarta liðið sem vann keppnina.